Fara í efni

Umhverfið okkar

Sveitarfélagið Hornafjörður er víðfemt með viðkvæma náttúru því er mikilvægt að íbúar og gestir gangi gætilega um og beri virðingu fyrir fjölbreyttri náttúru. Hættur og tækifæri geta leynst í slíkri náttúru, fjörur, jöklar og ár geta verið hættulegar og utanvegaakstur á viðkvæmum svæðum er ólíðandi.

Íbúar finna fyrir áhrifum loftslagsbreytinga, m.a. vegna hörfunar jökla og áhrifa á heimahaga, sjávarútveg, landbúnað og ferðaþjónustu. Verndun umhverfis og náttúru er því sameiginlegt hagsmunamál íbúa, fyrirtækja og stofnana og grunnur að samstarfi í umhverfismálum. Ferðamönnum fjölgar og mikilvægt er að þeir taki, líkt og íbúar, þátt í að styðja jákvæða þróun.

Hornafjörður er víðfeðmt sveitarfélag þar sem byggð er dreifð á um 200 km svæði, frá Hvalnesskriðum að Skeiðarársandi. Flestir búa á Höfn en einnig í dreifbýli.

Náttúra svæðisins er einstök og fjölbreytt, með stóran hluta Vatnajökulsþjóðgarðs, strandlengjur, sanda, ár og vötn.

Helstu áherslur í umhverfismálum:

  • Vernda og viðhalda fjölbreyttu lífríki svæðisins
  • Styðja við vernd og endurheimt votlendis
  • Vernda mikilvæg búsvæði fugla, t.d.:
    • strandlengjur
    • votlendi
    • mólendi
    • svæði við ár og vötn
  • Vernda viðkvæmt lífríki fjöru og grunnsævis gegn mengun
  • Koma í veg fyrir utanvegaakstur sem veldur langvarandi skemmdum á gróðri og landi

Fuglalíf er fjölbreytt og svæðið vinsælt til fuglaskoðunar, sem undirstrikar mikilvægi verndar búsvæða. Strendur gegna einnig mikilvægu hlutverki fyrir bæði land- og sjávarspendýr.