Fara í efni

Umhverfis- og framkvæmdasvið

Umhverfis- og framkvæmdasvið fer með umhverfis-, skipulags-, framkvæmda- og rekstrarmál sveitarfélagsins.

Skipurit Umhverfis- og framkvæmdasviðs

Sviðið hefur umsjón með skipulagsmálum, umhverfis- og úrgangsmálum, byggingarmálum, framkvæmdum, viðhaldi og rekstri mannvirkja og veitukerfa. Þá heyra undir sviðið málefni byggingafulltrúa, fasteignaskráning, Hornafjarðarhöfn, slökkvilið og áhaldahús sveitarfélagsins. Sviðið sinnir einnig eftirliti og ráðgjöf á sínu starfssviði og vinnur að framgangi verkefna sem tengjast sjálfbærni, öryggi, innviðum og góðu umhverfi.

Opna skipurit

Undir sviðið heyra meðal annars:

  • Yfirumsjón með umhverfis-, skipulags- og framkvæmdamálum
  • Aðal- og deiliskipulagsmál
  • Byggingamál, byggingarleyfi og starfsemi byggingafulltrúa
  • Fasteignaskráning og lóðamál
  • Sorpmál, hreinlætismál, úrgangsstjórnun og hringrásarhagkerfi
  • Dýrahald, meindýravarnir og tengt eftirlit
  • Mengunarmál, verndarsvæði og landupplýsingar
  • Loftslagsmál og umhverfisvernd
  • Umferðaröryggismál og umferðarmál
  • Nýframkvæmdir, viðhaldsverkefni og verklegar framkvæmdir
  • Rekstur og viðhald bygginga, gatna og veitukerfa
  • Áhaldahús og þjónustumiðstöð
  • Hornafjarðarhöfn, hafnarrekstur, vigtun og skráning skipa
  • Slökkvilið, brunavarnir og eldvarnareftirlit