Sveitarfélagið Hornafjörður veitir foreldrum barna 6-18 ára sem eiga lögheimili í sveitarfélaginu, frístundastyrk að upphæð kr. 70.000 á ári og 5 ára börnum styrk að upphæð kr. 15.000 árið 2025. Frístundastyrkur er veittur vegna þátttöku barna í skipulögðu íþrótta- og frístundastarfi, þar með talið nám í Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu.
Um nýtingu frístundastyrks
Með frístundastyrknum má greiða að fullu, eða hluta fyrir íþrótta-, lista- og/eða aðra frístundastarfsemi sem samþykkt hefur verið inn í Sportabler frístundastyrkjakerfi sveitarfélagsins. Öll íþrótta- og frístundatilboð þurfa að uppfylla reglur um frístundastyrk til þess að fá skráningu þar.
Einungis er hægt að nýta frístundastyrkurinn með því að skrá börnin í tómstundir í gegnum Sportabler og er foreldrum bent á að ónýttir styrkir fyrnast um hver áramót.
Ekki er hægt að greiða í banka og framvísa greiðslukvittun í afgreiðslu ráðhússins. Ef foreldrar gleyma að haka við nýtingu frístundastyrks missa þeir þar með af tækifæri til að nýta styrkinn í það sinn því Sportabler frístundakerfið býður ekki upp á leiðréttingu heldur þarf að nýta styrkinn seinna fyrir annað námskeið.
Sindri eða sveitarfélagið
Hægt er að nýta frístundastyrkinn á marga vegu bæði hjá Sindra og Sveitarfélaginu Hornafirði .
Ef um er að ræða Tónskóla, gæslu eða annað á vegum Sveitarfélagsins eða ýmissa minni félaga er notast við Sportabler síðu Sveitarfélagsins en notast er við Sindra síðuna þegar sótt er íþróttarnámskeið á vegum Sindra
Þegar barn er skráð í fyrsta skipti þarf að nýskrá
1. Veldu "Innskrá í Sportabler"
2. Þegar þessi gluggi birtist skaltu velja "stofna aðgang"
3. Sláðu inn tölvupóstfang og kennitölu og veldu Senda boð. Staðfestingatölvupóstur sendist þá á tölvupóstfangið sem þú gafst upp, þar þarf að opna og velja lykilorð
Athuga að staðfestingatölvupóstur gæti endað sem ruslpóstur