Fara í efni

Eldri borgarar

Markmið við veitingu þjónustunnar er að aldraðir geti búið sem lengst á heimili sínu við sem eðlilegastar aðstæður, fái nauðsynlegan stuðning til að njóta sinna mannréttinda til jafns við aðra og skapa því skilyrði til sjálfstæðs lífs á eigin forsendum

Við framkvæmd þjónustu við aldraða skal virðing borin fyrir mannlegri reisn þess, sjálfræði og sjálfstæði. Unnið er útfrá hugmyndafræði þjónandi leiðsagnar í allri vinnu stuðnings- og virkniþjónustu velferðarsviðs, sem heldur utan um þjónustuna.

Þjónustan heim

Sveitarfélagið Hornafjörður í samstarfi við HSU hefur samþætt heimaþjónustu og heimahjúkrun undir heitinu þjónustan heim. 

Markmið þjónustunar

  • Að styðja notendur sem þurfa aðstoð vegna aðstæðna eða félagslegrar einangrunar.

  • Að efla sjálfstæði og sjálfsbjargargetu notenda.

  • Að virða sjálfsákvörðunarrétt hvers og eins.

  • Að gera fólki kleift að búa heima við sem eðlilegastar aðstæður, eins lengi og hægt er.

  • Að sníða þjónustuna að einstaklingsbundnum þörfum.

Sótt er um úrræði Þjónustunnar heim rafrænt á íbúagátt sveitarfélagsins.  Frekari upplýsingar um úrræði Þjónustunnar heim veita starfsmenn stuðning- og virkniþjónustu í síma 470-8000 eða á netfanginu velferd@hornafjordur.is

Þjónustan heim felur í sér eftirfarandi þjónustuþætti

Markmið heimaþjónustu er að efla notandann til sjálfsbjargar og sjálfræðis og gera honum kleift að búa sem lengst á eigin heimili við sem eðlilegastar aðstæður.

Félagsleg heimaþjónusta getur verið veitt innan sem utan heimilis umsækjanda og er alla jafna um einstaklingsmiðaðan stuðning að ræða. Með félagslegri heimaþjónustu er átt við stuðning við heimilishald, athafnir daglegs lífs og/eða félagslegan stuðning til þess að rjúfa félagslega einangrun.

Markmið stuðningsþjónustu er ávallt að veita umsækjanda stuðning og þjálfun til þess að geta búið heima og verið félagslega virkur.

Stuðningur getur falið í sér:

  • stuðning við heimilishald s.s. þrif á heimili, matseld og önnur heimilisstörf
  • stuðning við athafnir daglegs lífs s.s. persónulega aðhlynningu, hreinlæti, klæða sig/hátta, borða, taka inn lyf og annað sem varðar athafnir daglegs lífs
  • félagslegan stuðning og/eða stuðning við rekstur erinda
  • heimsendan mat
  • öryggisinnlit
  • sérhæfða ráðgjöf

Gjaldskrá félagslegrar heimaþjónustu er aðgengileg hér.

Í Ekrunni, að Víkurbraut 30, fer dagdvöl og félagsstarf aldraðra fram. Þar er starfrækt fjölbreytt starfsemi samhliða félagsstarfi aldraðra sem er á vegum Félags eldri Hornfirðinga. 

Símanúmer dagvistar í Ekru er: 470-8030.

Markmið þjónustunnar er að fyrirbyggja félagslega einangrun og koma til móts við áhugasvið, færni og þekkingu þátttakenda á hverjum tíma í ýmis konar listsköpun og verkefnum sem oft eru árstíðabundin. Félagsstarf aldraða hefur það markmið að stuðla að samskiptum og veita félagsskap.

Þar er boðið upp á mat alla virka daga og á sunnudögum sem er opið öllum almenningi í sveitarfélaginu. Á miðvikudögum er samsæti með kaffi og bakkelsi.

Hjúkrunarheimilið Skjólgarður sér um að útbúa matinn og má sjá matseðil þeirra hér.

Gjaldskrá fyrir dagþjónustu og matarþjónustu í Ekrunni er aðgengileg hér.

Boðið er upp á matarþjónustu í hádeginu í Ekrunni að Víkurbraut 30 alla virka daga og á sunnudögum samhliða dagvöl og félagsstarfi aldraðra. Á miðvikudögum er samsæti með kaffi og bakkelsi.

Heimsendur matur er í boði fyrir þá sem ekki geta sjálfir séð um matseld í skemmri eða lengri tíma.

Hjúkrunarheimilið Skjólgarður sér um að útbúa matinn og má sjá matseðil þeirra hér

Gjaldskrá matarþjónustu má sjá hér.

Markmið með akstursþjónustu aldraðra í Sveitarfélagi Hornafjarðar er að gera öldruðum kleift að búa í heimahúsi lengur og stuðla að auknu félagslegu sjálfsstæði.

Þeir íbúar Sveitarfélagsins Hornafjarðar sem eru 67 ára og eldri, búa sjálfstætt og eru ófærir um nota almenningssamgöngur vegna langvarandi hreyfihömlunar og hafa ekki aðgang að eigin farartæki geta sótt um akstursþjónustu.

Akstursþjónusta aldraðra er í boði á eftirtöldum tímum:

  • Virka daga frá kl. 8:00 til kl. 22:00.
  • Um helgar frá kl. 10:00 til kl. 22:00.
  • Akstur á stórhátíðardögum er eins og á sunnudögum að undanskildum aðfanga- og gamlársdegi. Þá daga er akstursþjónusta til kl. 17:00 og aftur frá kl.: 20-22.

Miðað er við að ferðir hefjist innan þjónustutíma.

Notendur panta ferðir í síma 470-8022 og tekið er á móti pöntunum alla virka daga frá 8:30 – 15:30. Ekki er unnt að tryggja að hægt sé að veita þjónustu til einstaklinga nema pantað sé með a.m.k. dags fyrirvara, þó reynt sé að bregðast við pöntunum eins fljótt og auðið er.

Afpöntun reglubundinna ferða skal vera með sem lengstum fyrirvara, helst deginum áður en í undantekningar tilvikum með tveggja klukkustunda fyrirvara fyrir fyrirhugaða ferð. Að öðrum kosti telst ferðin með í uppgjöri.

Reglur Sveitarfélagsins Hornafjarðar um akstursþjónustu aldraðara má nálgast hér.

Gjaldskrá vegna akstursþjónustu aldraðra má nálgast hér. Ferð er skilgreind frá einum stað til annars innan þjónustusvæðisins (A-B)