Fara í efni

Heilsuefling eldri borgara

Heilsuefling á öllum æviskeiðum er nauðsynleg og getur verið lykilþáttur í því að viðhalda færni og getu á efri árum. Sveitarfélagið Hornafjörður er aðili að verkefninu Heilsueflandi Sveitarfélag og leggur mikla áherslu á að í boði sé viðeigandi heilsuefling fyrir alla.

Eftirfarandi er í boði í Ekru, Víkurbraut 30. Sími 470 8030.

  • Leikfimi mánudaga og fimmtudaga kl 10:30

  • Styrktarþjálfun miðvikudaga kl 10:30

  • Stólayoga föstudaga kl 10:30

  • Yoga nidra mánud, miðvikud og fimmtudaga kl 12:00

  • Boccia mánudaga og föstudaga kl 10:00

  • Gönguferðir frá Ekru mánudaga og fimmtudaga kl 10:00

  • Snooker opið frá kl. 10-15

  • Pílukast opið frá kl. 10-15

  • Þythokkí opið frá kl. 10-15

  • Dans einn sunnudag í mánuði yfir vetrartímann

  • Handavinna allan ársins hring frá 10-15

  • Spilað þriðjudagar og fimmtudagar kl 13-15 (Bridge, vist, manni, lomber)

  • Spilað þegar tækifæri gefst á öðrum tímum.

  • Gleðigjafar, kór eldri Hornfirðinga, æfingar á þriðjudögum kl 17, raddæfingar aukalega ef þarf. September-Maí.

  • Vettvangsferðir af og til yfir allt árið, auglýst sérstaklega.

Í Sundlaug Hafnar, Víkurbraut. Sími 4708477.

  • Vatnsleikfimi fimmtudagar kl 13.30. árstíðarbundið.
  • Hafyoga þriðjudaga kl 17-18 yfir vetrartímann

Félag eldri borgara Hornafirði. https://www.facebook.com/groups/felageldrihornfirdinga

  • Minigolf, við Ekru, Víkurbraut 30, opið allan ársins hring
  • Púttvöllur Silfurnesvöllur, við Mánabraut. https://www.ghhgolf.is/

Sporthöllin, Álaugarvegi 7. 

  • Heilsuefling 65 + tvisvar í viku, þriðjudögum og fimmtudögum, kl. 10:30-11:30. Frí yfir sumartímann. Verð 3500kr á mánuði. 
    Hægt er að fá frekari upplýsingar með því að senda tölvupóst á kolla@sporthollin.is og þá má finna facebook hóp fyrir þá sem eru skráðir, eða áhugasama hér.  

Sjúkraþjálfun Höfn, Víkurbraut 28, sími 470 8670

Göngustígar meðfram sjónum, dásamleg gönguleið með bekkjum til hvíldar.