Fara í efni

Fræðslu- og frístundasvið

Fræðslu- og frístundasvið hefur yfirumsjón með skólaþjónustu í leik-, grunn- og tónskóla, ásamt málefnum íþróttamiðstöðvar og frístundamálum ungmenna.

Skólaþjónusta 

Skólaþjónustan styður við skólastarf með því að efla faglega hæfni skólanna og veita starfsfólki og nemendum nauðsynlega ráðgjöf og aðstoð. Hún starfar samkvæmt reglugerð um skólaþjónustu sveitarfélaga og miðar að því að bæta skólaumhverfið og styðja við þarfir allra sem að skólastarfinu koma.

Markmið skólaþjónustu:

  • Styðja við faglegt skólastarf.
  • Veita ráðgjöf og aðstoð við úrlausn viðfangsefna í skólastarfi.
  • Starfa samkvæmt ákvæðum reglugerðar um skólaþjónustu sveitarfélaga.

Þjónusta skólaþjónustu felur í sér:

Fyrir starfsfólk skóla:

  • Ráðgjöf um kennslu og umönnun nemenda.
  • Ráðgjöf vegna náms barna með sérþarfir.
  • Ráðgjöf um starfshætti skóla.
  • Stuðning við nýbreytni og þróunarverkefni.
  • Aðstoð varðandi starfsumhverfi og faglegt starf.

Fyrir foreldra og nemendur:

  • Foreldrar leik- og grunnskólabarna geta óskað eftir:
    • Athugun á þörfum barnsins.
    • Greiningu.
    • Ráðgjöf og stuðningi vegna náms og líðan.
  • Skólastjórnendur, kennarar, náms- og starfsráðgjafar eða annað starfsfólk skóla/skólaheilsugæslu geta einnig óskað eftir sérfræðiaðstoð
    (með samþykki foreldra og í samráði við þá).

Hverjir geta óskað eftir sérfræðiaðstoð?

  • Skólastjórnendur.
  • Kennarar.
  • Náms- og starfsráðgjafar.
  • Annað starfsfólk skóla eða skólaheilsugæslu
    (í samráði við og með samþykki foreldra).

Beiðnir skulu alltaf berast til skólastjóra.

Starfsmenn skólaþjónustu

Þórgunnur Torfadóttir
Sviðstjóri Fræðslu- og frístundasviðs
Emil Moravék
Verkefnastjóri

Leik- og grunnskólar í Sveitarfélaginu Hornafirði