Áróra Gústafsdóttir
Skólastjóri Hofgarði

Leik- og grunnskólinn í Hofgarði er fámennur samkennsluskóli þar sem nemendur búsettir í Öræfum stunda nám.
Mikið samstarf er milli skólastiganna. Nemendur og starfsmenn borða saman í sal skólans, halda sameiginlega árshátíð og gefa saman út skólablað. Útivera í frímínútum er einnig sameiginleg.
Skólinn starfar í samstarfi við Grunnskóla Hornafjarðar og leikskólann Sjónarhól á Höfn þar sem m.a. er unnið eftir uppeldisstefnunni: Uppeldi til ábyrgðar. Skólastarfið samræmist auk þess menntastefnu sveitarfélagsins og aðalnámskrá leiks- og grunnskóla.
Skólinn er umhverfisvænn og flokkar allt sorp, er með safnhaug fyrir lífrænan úrgang, skólagarð, leggur sig fram um að spara rafmagn og fara vel með pappír.
