Fara í efni

Ábyrgð og skráning fasteigna

Eigendur bera ábyrgð á að mannvirki séu hönnuð, byggð og rekin í samræmi við gildandi lög og reglugerðir, auk þess að skráning fasteigna sé rétt og uppfærð. Mikilvægt er að eigendur hafi yfirsýn yfir eignir sínar, sinni lögbundnu eftirliti og tryggi að upplýsingar í fasteignaskrá endurspegli raunverulegt ástand, enda getur röng eða ófullnægjandi skráning haft áhrif á réttindi og tryggingavernd.

Skráning fasteigna

Byggingarfulltrúi hvetur eigendur til að yfirfara skráningu fasteigna sinna. Um skráningu gilda lög um skráningu og mat fasteigna nr. 6/2001 og reglugerð nr. 406/1978 með síðari breytingum.

Eigendur geta skoðað skráningu á vef HMS (https://hms.is/fasteignaskra) með leit eftir götuheiti, fasteignanúmeri eða landeignarnúmeri. Ef skráning endurspeglar ekki raunverulegt ástand þarf að sækja um breytingu í gegnum Íbúagátt sveitarfélagsins.

Við slíkar breytingar getur þurft að uppfæra uppdrætti og skráningartöflur.

Mikilvægt er að hafa í huga að óskráðar eignir eru ekki tryggðar. Tjón á óskráðum viðbyggingum fæst því ekki bætt.

Um skráningu fasteigna gilda eftirfarandi lög og reglugerð:

Ef skráning fasteignar er ekki rétt skal sækja um breytingu í gegnum Íbúagátt sveitarfélagsins í umsókn um staðfestingu merkjalýsingar.

Breyta skráningu fasteignar

Frágangur lóða

Lóðarhafa ber að ganga snyrtilega frá lóð sinni samkvæmt samþykktum uppdráttum og tryggja að þar sé opið svæði sem hentar til útiveru og leikja.
Ekki má planta hávöxnum trjám nær lóðarmörkum en 4,0 m og skal halda gróðri innan lóðar. Sinni lóðarhafi því ekki getur veghaldari eða umráðamaður svæðis fjarlægt það sem veldur truflun, á kostnað lóðarhafa.

Lýsing á lóð skal ekki valda ljósmengun, óþægindum fyrir nágranna eða trufla umferð.

Hæð girðinga skal vera í samræmi við skipulagsskilmála. Byggingarleyfi þarf fyrir girðingar og skjólveggi nema um sé að ræða undanþágu skv. f-lið 1. mgr. 2.3.5. gr. byggingarreglugerðar nr. 112/2012 m.s.b. Samþykki beggja lóðarhafa þarf alltaf fyrir girðingu eða skjólvegg á lóðarmörkum.

Ábendingar

Hægt er að senda ábendingar um óleyfisframkvæmdir í gegnum Íbúagátt Sveitarfélagsins Hornafjarðar eða á netfang byggingarfulltrúa. Einnig er hægt að senda nafnlausa ábendingu bréflega á: Bæjarskrifstofur Sveitarfélagsins Hornafjarðar, Hafnarbraut 27, 780 Höfn.

Senda ábendingu