Eignaskiptayfirlýsing
Um eignaskiptayfirlýsingu gildir reglugerð nr. 910/2000 og hér er að nálgast gátlista frá Þjóðskrá vegna eignaskiptayfirlýsingu.
Hvað er eignaskiptayfirlýsing?
Eignaskiptayfirlýsing er lögbundið skjal fyrir fjöleignarhús sem sýnir hvernig húsinu er skipt upp í:
- séreignir (t.d. íbúðir)
- sameign allra
- sameign sumra
Í henni kemur einnig fram:
- hlutdeild eigenda í sameign
- réttindi og skyldur eigenda
Eignaskiptayfirlýsingar eru gerðar samkvæmt lögum um fjöleignarhús og reglugerð nr. 910/2010.
Aðeins aðilar með leyfi frá ráðherra mega útbúa slíkar yfirlýsingar. Sjá lista
Hvað þarf að fylgja?
1. Eignaskiptayfirlýsing
Í skjalinu þarf meðal annars að koma fram:
- lýsing á húsinu og einstökum eignarhlutum
- hlutfallstölur og útreikningar
- upplýsingar um bílastæði, bílskúra og byggingarrétt
- lýsing á sameign (allra og sumra)
- kvaðir og sérstök réttindi
Gátlista má finna á vef Þjóðskrár.
2. Teikningar
Með skulu fylgja:
- grunnmyndir og sniðmyndir af öllum hæðum
- afstöðumynd af lóð (ef við á)
Teikningar skulu:
- vera í samræmi við skráningarreglur
- sýna stærðir (fm og m³)
- vera á A4
3. Skráningartafla
- Skal fylgja með yfirlýsingu
- Skal einnig skila rafrænt til byggingarfulltrúa
Mikilvægt að hafa í huga
Samræmi við teikningar
Eignaskiptayfirlýsing þarf að vera í samræmi við samþykktar aðalteikningar húss.
Ef breytingar eru til staðar
Ef skipting eða notkun er frábrugðin samþykktum teikningum:
- getur þurft að sækja um byggingarleyfi
- byggingarfulltrúi getur gert kröfu um það
Hvernig sæki ég um?
Beiðni um staðfestingu er send í gegnum Íbúagátt.
Ferlið er svona:
- Skil á eignaskiptayfirlýsingu og fylgigögnum rafrænt
- Yfirferð hjá byggingarfulltrúa
- Mögulegar athugasemdir eða leiðréttingar
- Endanleg staðfesting
Ef verið er að stofna nýja fasteign þarf einnig að:
- senda umsókn til Þjóðskrár (F-551)