Fara í efni

Úttektir

Við byggingu mannvirkja fara fram lögbundnar úttektir til að tryggja að framkvæmdir séu í samræmi við samþykkt byggingaráform og gildandi reglur. Hér má finna upplýsingar um helstu tegundir úttekta sem fara fram á byggingartíma, framkvæmd þeirra og tengd eyðublöð.

Flokkun úttektar- og eftirlitsaðila

Úttektir á byggingarframkvæmdum skiptast í 

  • áfangaúttektir
  • stöðuúttektir
  • öryggisúttektir
  • lokaúttektir.

Almennt eru áfangaúttektir framkvæmdar af byggingarstjóra, nema annað hefur verið ákveðið sbr. 3.3.1.gr. og 3.mgr. 3.7.1.gr. byggingarreglugerðar nr. 112/2012. Stöðuúttektir, öryggisúttektir, og lokaúttektir skulu vera framkvæmdar af byggingarfulltrúa eða starfsmönum embættis.

Í 3.3.1 gr. byggingareglugerðar nr. 112/2012 er heimild fyrir bæjarstjórn, Húsnæðis- og Mannvirkjastofnun eða byggingarfulltrúa að ákveða að skoðunarstofa annist áfanga-, öryggis-, og lokaúttektir. Slík skoðunarstofa skal hafa starfsleyfi Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.

Hafi verið ákveðið að skoðunarstofa annist eftirlit skal eigandi mannvirkisins ráða skoðunarstofu til verksins og greiða kostnað við eftirlitið. Byggingarfulltrúa er í slíkum tilvikum einungis heimilt að taka gjald sem nemur kostnaði við þá þætti eftirlitsins sem hann annast.

Framkvæmd úttekta

Við framkvæmd úttekta skulu byggingarfulltrúi, byggingarstjóri, og skoðunarstofur starfa í samræmi við ákvæði skoðunarhandbókar, skoðunarlista og stoðrita Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.

Skoðunarhandbók er birt í viðauka við byggingarreglugerð nr. 112/2012, en skoðunarlistar og stoðrit er hægt að skoða á vefsíðu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.

Niðurstaða hverrar einstakrar skoðunar skal skráð í skoðunarskýrslu og afhenda í gagnasafn Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.

Öryggis- og lokaúttektir

Óheimilt er að flytja inn í mannvirki eða taka það í notkun nema það uppfylli öryggis- og hollustukröfur laga um mannvirki og reglugerða sem settar eru samkvæmt þeim og byggingarfulltrúi hafi gefið út vottorð um öryggisúttekt.

Heimild til öryggis- og lokaúttekta er veitt að uppfylltum skilyrðum sbr. 3.8. og 3.9. kafla byggingarreglugerðar nr. 112/2012.

Þegar sótt er um heimild til úttektar skal byggingarstjóri afhenda viðeigandi yfirlýsingar og staðfestingar (sjá eyðublöð að neðar á þessarar síðu). Umsókn um öryggis- og lokaúttektir skal senda á byggingarfulltrui@hornafjordur.is 

Útgáfa vottorða

Þegar öryggis- eða lokaúttekt hafa farið fram, gefur byggingarfulltrúi út viðeigandi vottorð. Séu gerðar athugasemdir við öryggis- eða lokaúttekt skal byggingarstjóri sjá til þess að bætt sé úr og úttekt endurtekin. Í skoðunarhandbók er tilgreint í hvaða tilvikum og með hvaða skilyrðum byggingarfulltrúa er heimilt að samþykkja öryggisúttekt með athugasemdum.

Sé óskað eftir vottorði vegna byggingarstigs (t.d. fokheldisvottorð) skal sækja um það sérstaklega á netfangið byggingarfulltrui@hornafjordur.is.  Byggingarstjóri skal staðfesta í slíkum tilvikum að staða framkvæmda sé komin á viðeigandi byggingarstig sbr. ÍST 51.

Handbók mannvirkis

Áður en lokaúttekt mannvirkis fer fram ber byggingarstjóra að afhenda eiganda og leyfisveitanda til vörslu handbók mannvirkisins. Handbókin skal afhent á rafrænu formi svo og öll gögn sem henni kunna að fylgja. Við mjög einföld verk er heimilt að sleppa gerð handbókar mannvirkis.

  • EYÐ-304 - Staðfesting rafvirkjameistara um verklok
  • EYÐ-305 - Yfirlýsing rafvirkjameistara um brunaviðvörunarkerfi
  • EYÐ-306 - Yfirlýsing pípulagningameistara um vatnsúðarkerfi
  • EYÐ-307 - Yfirlýsing Vinnueftirlits Ríkisins vegna lyftu
  • EYÐ-308 - Yfirlýsing pípulagningameistara vegna hitakerfis
  • EYÐ-309 - Yfirlýsing vegna loftræsikerfis
  • EYÐ-310 - Yfirlýsing um aðalskoðun leiksvæðis vegna öryggisúttektar
  • EYÐ-311 - Yfirlýsing Vinnueftirlits ríkisins vegna gaslagna og annarra þrýstilagna
  • EYÐ-313 - Lýsing á stöðu framkvæmda v. öryggisúttektar
  • EYÐ-314 - Skráning yfir eigin úttektir byggingarstjóra
  • EYÐ-315 - Yfirlýsing byggingarstjóra um innra eftirlit vegna lokaúttektar