Fara í efni

Aðalskipulag

Aðalskipulag Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2012-2030. Nýtt aðalskipulag var samþykkt á bæjarstjórnarfundi þann 3. apríl 2014 og staðfest af Skipulagstofnun 18. september sama ár.

Til að nálgast samþykkt deiliskipulög sveitarfélagsins sem hafa hlotið lögformlegt gildi, þarf að fara inn á skipulagsvefsjá Skipulagstofnunnar.

Meginmarkmið og áherslur með endurskoðun aðalskipulagsins:

  • Að efla byggð og landnotkun með áherslu á heilbrigði og öryggi þar sem efnahagslegar, félagslegar og menningarlegar þarfir eru hafðar að leiðarljósi.

  • Skynsamleg og hagkvæm nýting lands og landsgæða, að tryggja vernd landslags, náttúru og menningarverðmæta og koma í veg fyrir spjöll og ofnýtingu.

  • Að almannahagsmunir ráði för við opinberar ákvarðanir.

  • Að stuðla að gegnsærri og opinni stjórnsýslu þar sem allir íbúar eigi kost á að koma skoðun sinni á framfæri.

  • Faglegan undirbúning mannvirkjagerðar 

Skipulagsvefsjá

Í Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar má nálgast allt gildandi svæðis-, aðal- og deiliskipulag, uppdrætti og greinargerðir ásamt stafrænum skipulagsgögnum til skoðunar og niðurhals.

Opna Skipulagsvefsjá