Einstaklingar og fyrirtæki sækja um framkvæmdaleyfi á íbúagátt sveitarfélagsins. Sótt er um framkvæmdarleyfi á grundvelli 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og reglugerðar um framkvæmdarleyfi nr. 772/2012.
Sækja um framkvæmdaleyfiFramkvæmdaleyfi
Framkvæmdaleyfi sem eru samþykkt af bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar eru nú aðgengileg í skipulagsgátt Skipulagsstofnunar.
Afla skal framkvæmdaleyfis sveitarstjórnar vegna meiri háttar framkvæmda sem áhrif hafa á umhverfið og breyta ásýnd þess, svo sem breytingar lands með jarðvegi eða efnistöku, og annarra framkvæmda sem falla undir lög um umhverfismat framkvæmda og áætlana.
Athygli er vakin að ekki þurfi að sækja um framkvæmdarleyfi fyrir minniháttar efnistöku á séreignarlandi til eigin nota.
Skipulagsgátt
Í skipulagsgáttinni eru birt gögn um skipulagsmál, umhverfismat og leyfisveitingar jafnharðan og þau verða til, ásamt umsögnum og athugasemdum sem berast við kynningu mála.
Opna Skipulagsgátt