Fara í efni

Skipulag í kynningu

Skipulagsstofnun hefur nú tekið í gagnið nýjan vef sem kölluð er skipulagsgátt og með henni er bætt til muna gegnsæi og aðgengi að upplýsingum um skipulagsmál og einstakar framkvæmdir.

Skipulagsgáttin er hluti af uppbyggingu rafrænnar stjórnsýslu og stafrænni þjónustu hins opinbera. Sveitarfélagið Hornafjörður hefur þegar hafið notkun gáttarinnar og verða skipulagsmál framvegis eingöngu aðgengileg þar. Á heimasíðu sveitarfélagsins verða áfram birtar fréttir sem vísa á ný mál í gáttinni.

Íbúar eru hvattir til að fylgjast með fundargerðum og skipulagsgáttinni. Hægt er að vakta mál eftir svæðum og/eða tegundum og fá tilkynningar í tölvupósti þegar ný mál eru skráð.

Skipulagsgátt

Í skipulagsgáttinni eru birt gögn um skipulagsmál, umhverfismat og leyfisveitingar jafnharðan og þau verða til, ásamt umsögnum og athugasemdum sem berast við kynningu mála.

Opna Skipulagsgátt