Gámar
Gámar eru staðlaðar geymslueiningar sem notaðar eru til vöruflutninga á sjó og landi. Gámahús teljast almennt ekki sem slíkir gámar, heldur geta þau verið mannvirki sem oft þarf byggingarleyfi fyrir. Sum slík mannvirki geta þó verið undanþegin leyfi ef þau eru smá og uppfylla ákveðin skilyrði um stærð og gerð. Tímabundnar eða lausar byggingar sem eru ætlaðar til dvalar eða svefns í langan tíma á sama stað (t.d. húsvagnar) teljast einnig sem mannvirki og geta þurft leyfi.
Tímabil stöðuleyfis
Sækja þarf um stöðuleyfi ef lausafjármunir (t.d. gámar, bátar eða hjólhýsi) standa lengur en tvo mánuði á sama stað utan skipulagðra svæða. Stöðuleyfi er almennt veitt til allt að 12 mánaða, nema skipulag segi annað.
Skipulögð svæði
Ekki þarf stöðuleyfi ef lausafjármunir eru á svæðum sem eru sérstaklega skipulögð og ætluð til slíkrar geymslu, svo sem gámasvæðum eða hafnarsvæðum. Einnig getur geymsla á iðnaðarlóð verið heimil án stöðuleyfis ef gert er ráð fyrir henni í samþykktum uppdráttum eða skipulagi.
Öryggi
Lausafjármunum skal komið fyrir þannig að þeir valdi ekki hættu, hvorki vegna elds né fyrir almenning, og að aðgengi slökkviliðs sé tryggt. Leyfishafi ber ábyrgð á öryggi og að aðstaða uppfylli kröfur um hollustuhætti og fráveitu eftir því sem við á.
Um veitingu stöðuleyfa gilda ákvæði í byggingarreglugerð nr. 112/2012 og ber umsækjanda að kynna sér þau.