Sigurjón Andrésson
Bæjarstjóri

Sigurjón er iðnmenntaður í grunninn með diplóma í mannauðsstjórnun frá Háskóla Íslands, alþjóðlega gráðu í verkefnastjórnun frá Bandaríkjunum og meistaragráðu í viðskiptafræði (Executive MBA) frá Háskólanum í Reykjavík. Sigurjón hefur reynslu af sveitarstjórnarmálum hann var í framboði fyrir T-listann í Flóahreppi og sat í sveitarstjórn þar. Sigurjón er giftur Margréti Söru Guðjónsdóttur kennara við Menntaskólann í Reykjavík og eiga þau tvær uppkomnar dætur.
Staðgengill bæjarstjóra er Jóna Benný Kristjánsdóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs, sími 470-8000 eða jonabenny@hornafjordur.is.
Það er hægt að hafa samband við Sigurjón á netfangið sigurjon@hornafjordur.is eða í síma 470-8000 eða í farsímanúmerið 781-2201.
