Fara í efni

Húsnæðismál

Hægt er að sækja um almennt og félagslegt leiguhúsnæði og íbúðir fyrir aldraða ásamt sérstökum húsnæðisstuðning rafrænt í gegnum íbúagátt Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Frekari upplýsingar varðandi húsnæðismál veita starfsmenn fjölskyldu- og félagsþjónustu í síma 470-8000 eða á netfangið velferd@hornafjordur.is.

Sveitarfélagið Hornafjörður býður upp á fjölbreytt húsnæðisúrræði fyrir íbúa sveitarfélagsins. Þar á meðal eru almennt leiguhúsnæði, félagslegt leiguhúsnæði, húsnæði fyrir aldraða og sérstakur húsnæðisstuðningur.

Markmiðið er að tryggja öruggt og viðeigandi húsnæði fyrir einstaklinga og fjölskyldur sem þurfa á stuðningi að halda – hvort sem er vegna félagslegra aðstæðna, tekna eða aldurs.

Umsóknir um húsnæðisúrræði eru afgreiddar af starfsmönnum fjölskyldu- og félagsþjónustu og fer úthlutun fram samkvæmt reglum sveitarfélagsins.
Sótt er um rafrænt í gegnum íbúagátt sveitarfélagsins á ibuagatt.hornafjordur.is

Almennt leiguhúsnæði

Íbúðafélag Hornafjarðar rekur fimm íbúðir á Bugðuleiru 5. Úthlutun fer fram hjá velferðarnefnd og fjölskyldu- og félagsþjónusta heldur utan um biðlista. Sótt er um rafrænt í gegnum íbúagáttina.

Sækja um á íbúagátt

Félagslegt leiguhúsnæði

Félagslegt leiguhúsnæði er fyrir einstaklinga og fjölskyldur sem ekki ráða við húsnæði á eigin forsendum vegna félagslegra eða fjárhagslegra aðstæðna. Umsóknir eru metnar út frá tekjum og aðstæðum. Sótt er um rafrænt í gegnum íbúagáttina.

Sækja um á íbúagátt

Húsnæði aldraðra

Húsnæði fyrir aldraða er ætlað íbúum 65 ára og eldri. Tekið er mið af félagslegum aðstæðum og tekjum við úthlutun. Sótt er um rafrænt í gegnum íbúagáttina.

Sækja um á íbúagátt

Sérstakur húsnæðisstuðningur

Sérstakur húsnæðisstuðningur er veittur þeim sem eiga erfitt með að standa undir húsnæðiskostnaði vegna tekna eða félagslegra aðstæðna. Sótt er um rafrænt í gegnum íbúagáttina.

Sérstakur húsnæðisstuðningur er ætlaður til viðbótar við almennar húsnæðisbætur. Almennur húsnæðisstuðningur er ekki á ábyrgð sveitarfélagsins. Hægt er að sækja um almennan húsnæðisstuðning hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, www.hms.is

Sækja um á íbúagátt