- Útikettir: Verða alltaf að bera ól með símanúmeri eigenda.
- Mikilvægt - Varptími villtra fugla: Sveitarfélagið vill biðja eigendur katta að passa sérstaklega vel upp á þá á varptímanum á vorin. Bjöllur hafa mikið að segja.
Sveitarfélagið mun fylgjast með köttum sem eru á flækingi án ólar. Slíkir kettir verða meðhöndlaðir samkvæmt:- Reglugerð nr. 679/2017: GJALDSKRÁ fyrir kattahald í Sveitarfélaginu Hornafirði.
- Reglugerð nr. 912/2015: Samþykkt um kattahald og gæludýrahald annarra en hunda í sex sveitarfélögum á starfssvæði heilbrigðisnefndar Austurlandssvæðis.
- Af hverju skiptir ormahreinsun máli? Regluleg ormahreinsun er mikilvæg fyrir heilsu kattarins og sérstaklega fyrir útiketti, þar sem saur þeirra getur mengað garða og skapað heilsufarsáhættu fyrir börn sem leika sér þar.
Gæludýr
Sveitarfélagið minnir alla gæludýraeigendur á mikilvægi þess að skrá kétti og hunda. Skráning hunda og katta fer fram í gegnum íbúagátt sveitarfélagsins eða í afgreiðslu ráðhúss.

Íbúar þurfa að greiða árlegt skráningargjald fyrir bæði ketti og hunda.
Hvað felur skráningargjaldið í sér?
Heilsufarsskoðun hjá dýralækni og árlega ormahreinsun (framkvæmd í nóvember; dagsetningar verða auglýstar á heimasíðu og Facebooksíðu sveitarfélagsins).
Ábyrgðartryggingu.
Skráningargjöld sveitarfélagsins.
- Hreinsiskylda: Eigendum er bent á að taka alltaf upp eftir hunda sína til að viðhalda hreinu og notalegu umhverfi fyrir alla.
- Hundagarður á Höfn: Hundagarðurinn er hugsaður sem öruggur og skemmtilegur staður þar sem hundar geta hlaupið, leikið sér og verið saman lausir. Það fer þó eftir samvinnu allra að halda honum hreinum og öruggum.
Hundagarður

Reglur hundagarðsins - fylgið þeim vel.
- Takið alltaf upp eftir hundinum ykkar. Ruslatunnur eru við innganginn. Hafið alltaf poka meðferðis; aukapokar eru til staðar ef þið gleymið.
- Hafið grindverkið alltaf lokað svo hundar sleppi ekki út.
- Hundar skulu ávallt vera undir eftirliti eiganda.
- Notkun garðsins er á eigin ábyrgð. Eigendur bera fulla ábyrgð á hegðun og öryggi hundsins síns. Ekki koma með hunda sem eru veikir, í lóðarí eða þekktir fyrir að vera árásargjarnir gagnvart öðrum hundum eða fólki.
Þessar reglur eru settar til að allir geti notið garðsins á öruggan hátt. Garðinum er skipt í svæði fyrir litla og stóra hunda – veljið rétt svæði fyrir ykkar hund.
Á kortinu hér að ofan má sjá aðkomu og bílastæði við garðinn