Fara í efni

Bæjarstjórn

Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar er skipuð sjö bæjarfulltrúum sem kosnir eru hlutfallskosningu til fjögurra ára í senn. Bæjarstjórn kýs bæjarráð og aðrar nefndir, ræður bæjarstjóra, hefur yfirstjórn á fjárreiðum sveitarfélagsins og verklegum framkvæmdum og er í forsvari fyrir bæinn út á við. Þá setur bæjarstjórn reglur um stjórn og meðferð bæjarmálefna. Forseti bæjarstjórnar er Gauti Árnason.

Bæjarstjórnarkosningar voru 14. maí 2022. Bæjarfulltrúarnir sjö voru kjörnir af þremur listum:

  • D - Sjálfstæðisflokkur  fékk  38,3% þrjá fulltrúa,
  • K - Kex framboðið 30,0% tvo fulltrúa
  • B - Framsóknarflokkurinn 31,7% tvo fulltrúa. 

Sjálfstæðismenn og Kex framboð mynduðu meirihluta.

Fundir bæjarstjórnar eru haldnir 2. fimmtudag hvers mánaðar í Ráðhúsi kl. 15:00 og eru aðgengilegir hér á heimasíðu sveitarfélagsins og á Youtube rás sveitarfélagsins

Eftirfarandi eru kjörnir fulltrúar 2022 - 2026.

Hér verður listi af kjörnum fulltrúum